föstudagur, mars 07, 2003

Góðan og blessað daginn!!!!
Ég er að dayja mig vantar svo mikinn sykur ég iða alveg í sætinu og get ekki beðið eftir að fara í Fjraðakaup og sníkja fullt af nammi af mömmu.

Í gær var árshátíð í Flensunni og að sjálfsögðu fór ég á hana. Ég fór með vinkonu minni henni Sigrúnu Ýr og einhverjum vinkonum hennar og Möggu frænku hennar. Það var mjög gmana og ég skemmti mér konunglega enda alltaf gaman á böllum með hljómsvetinni í Svörtum Fötum því þeir spila geggjaða tónlist allan tímann. Enda kosnir besta ball hljómsveitin samkvæmt því sem ég las í mogganum. Þetta var líka búinn að vera skemmtilegur árshátíðardagur. Skemmtun inn í íþróttahúsi var mjög skemmtileg en of löng. Maturinn var yndislegur og skemmtiatriðin frábær.

Hef e3kkert sem er frásögum færandi hér á netinu og dettur heldur ekkert sniðugt í hug heldur.
Sé ykkur seinna!!! Að lokum vil ég segja að ég elska ykkur öll!

|